Almennt um liðverki
Vandamál í liðum skapast með hversdagslegri áreynslu á liðina eða í íþróttum sem með tímanum geta skemmt liði og/eða brjósk og valdið óþægindum og sársauka.
Hýalúrónsýra er meginefni í liðvökvanum sem umlykur beinin og brjóskið og höggverndar beinin í liðnum. Hýalúrónsýran virkar sem smurning og höggdeyfir á liðina og bætir liðleikan. Þegar við eldumst framleiðir líkaminn minna magn af Hýalúrónsýru sem leiðir til þess að magn liðvökvans fer minnkandi og er í kjölfarið ekki eins áhrifaríkur í að hlífa liðum við minniháttar höggum og áreynslu sem leiðir til þess að flísast getur úr beinunum.
Liðverkir er algengt vandamál og er vandamál sem á eftir að aukast vegna þess að við lifum lengur og við höfum hærri offitutíðni.
Rýrnun á vökvaframleiðslu getur myndað bólgur með tilheyrandi óþægindum og sársauka sem gerist síendurtekið sé ekkert að gert.
Til að rjúfa hringrásina og koma liðunum í samt lag á ný þarf að minnka bólgur og koma vökvamagninu í eðlilegt horf sem minnkar óþægindi/sársauka og eflir hreyfigetu í liðunum.
Á markaðnum eru vörur sérhannaðar annað hvort til að minnka sáraukann eða vernda og halda við liðunum, líkaminn þarfnast einhvers sem tekur á hvoru tveggja.